Frábær ræða forsetafrúarinnar á konudaginn

Á konudaginn, síðast liðinn sunnudag 19da febrúar, flutti forsetafrú Íslands, frú Eliza Reid, ræðu við guðsþjónustu í Vídalínskirkju í Garðabæ og var guðsþjónustunni útvarpað. Ræða forsetafrúarinnar var með bestu ræðum sem ég hef heyrt og hef ég þó heyrt margar góðar ræður um dagana.

Ræðan var efnismikil, einlæg og skemmtileg með lærdómsríkum samlíkingum og ábendingum sem bæði konur og karlar geta lært mikið af. Hins vegar hef ég hvergi séð minnst einu orði á þessa merku ræðu sem enn má hlusta á í Sarpinum: http://www.ruv.is/sarpurinn/ras-1/gudsthjonusta-i-vidalinskirkju/20170219.

Þá er hægt að lesa ræðuna á: http://forseti.is/media/1738/2017_02_19_er_vidalinskirkja.pdf. Vil ég benda hugsandi fólki á að hlusta á eða lesa ræðu forsetafrúar Íslands, frú Elizu Reid.

 


Bloggfærslur 24. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband