29.3.2010 | 21:05
"Dóttir mín á vinkonu" - orð gamals leiðtoga ASÍ
Ásmundur Stefánsson, núverandi bankastjóri LÍ, áður hagfræðingur ASÍ, framkvæmdastjóri og forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Íslandsbanka, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Íslands, stundakennari við MH og cand. polit. í hagfræði 1972 frá Kaupmannahafnarháskóla kom í Kastljós í kvöld.
Það vakti furðu okkar gamalla framsóknarmanna að norðan hversu gamlir byltingarmenn að sunnan eldast illa. Þeir tala ekki lengur um hagsmuni almennings í kerfishruni heimilanna í landinu - alþýðan er ekki nefnd á nafn - heldur tekin dæmi um að dóttir Ásmundar eigi vinkonu sem eigi í erfiðleikum með að flísaleggja gólfið heima hjá sér. Sjálfur segir hann sig ekki muna mikið um að skulda tíu milljónir í húsinu sínu, sem metið er á 300 milljónir króna, eftir að hafa ráðið sjálfan sig bankastjóra LÍ - þá formaður bankaráðs LÍ. Gaman væri að vita hverjar eru ævitekjur þessa gamla alþýðuforingja.
Sighvatur skáld Þórðarsonar frá Apavatni í Grímsnesi, sem talinn er dauður 1045, fór mikla svaðilför um Svíþjóð fyrir vin sinn Ólaf hinn helga Haraldsson Noregskonung að njósna um óvini konungs. Gisti hann hjá þeim manni sem kallaður var "besti þegn konungs". Ekki leist Sighvati skáldi betur en svo á þennan besta mann konungs að hann sagði í vísu einni: Þá er hinn versti illur ef þessi er hinn besti. Held ég þó göllum manna lítið á loft.
Sama segi ég: Þá er hinn versti illur ef þessi er hinn besti. Held ég þó göllum manna lítið á loft.
Bloggar | Breytt 1.4.2010 kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.3.2010 | 14:17
Stjórnlagaþing - samfélagssáttmáli
Atburðir undanfarin misseri hafa vakið til umhugsunar um hvað sameini þessa sundruðu þjóð, hver séu gildi samfélagsins og styrkur íslenskrar menningar - og hvort fámenn þjóð, sem eitt sinn var talin búa á mörkum hins byggilega heims, geti staðið auðvaldi heimsins snúning á tímum hnattvæðingar. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort starfshættir stjórnmálaflokka og fjölmiðla á Íslandi séu með svipuðum hætti og hjá frændþjóðum okkar, en í ljós hefur komið að siðferði í stjórnmálum og traustir fjölmiðlar skipta sköpum fyrir virkt lýðræði og farsælt stjórnarfar.
Land, þjóð og tunga
Þrennt sameinar þjóð. Í fyrsta lagi landið sem hún byggir. Í öðru lagi sagan og í þriðja lagi tungan sem þjóðin hefur alið af sér. Engin þjóðernishyggja býr að baki þessum orðum heldur eiga þau við allar þjóðir sem ala með sér vitund um að vera þjóð.
Landið, sagan og þjóðin
Lengi virtist Ísland aðeins geta brauðfætt um 50 þúsund manns vegna lélegs verðurfars, lítillar verkmenningar og brogaðs stjórnarfars. Á 18. öld, erfiðustu öld í sögu þjóðarinnar, fækkaði fólki stöðugt. Í upphafi aldar voru landsmenn um 50 þúsund, álíka margir og þeir höfðu verið um 1200. Í Stóru bólu 1706-1709 fækkaði fólki um þriðjung. Urðu Íslendingar þá aðeins um 36 þúsund og hafa aldrei orðið færri í sögu þjóðarinnar. Til samanburðar má nefna að mannfjöldi í Danmörku og Noregi hafði þá þrefaldaðist frá því um 1200. Ísland var á þessum tíma talið á mörkum hins byggilega heims.
Fólksfjölgun er nú meiri á Íslandi en í flestum öðrum löndum Evrópu. Veðurfar hefur batnað, verkkunnátta er sambærileg við verkkunnáttu í nágrannalöndunum og landgæði eru mikil: ósnortin víðerni, auðug fiskimið, orka í fallvötnum og jarðvarma, hreint vatn og hreint loft og stórbrotin og fjölbreytileg náttúra. Ræktun og uppgræðsla hefur tekið algerum stakkaskiptum, skógrækt er orðin atvinnugrein og farið að rækta korn og grænmetisrækt á sér framtíð ef rétt er á haldið.
Þúsund ár á einni öld
Styrkur íslensku þjóðarinnar felst í fleiru. Á einni öld hefur samfélagið breyst úr einagruðu bændasamfélagi í margskipt þekkingarþjóðfélag í stöðugum tengslum við umheiminn. Menntun er sambærileg menntun nágrannaþjóðanna. Rannsóknir og vísindi hafa stóreflst. Sem dæmi þar um má nefna að 1950 höfðu örfáir tugir Íslendinga lokið doktorsprófi. Nú skipta íslenskir doktorar þúsundum. Heilsugæsla er ekki síðri en í nágrannalöndunum og barnadauði, sem í lok 19. aldar var hæstur á Íslandi allra Evrópulanda, er nú lægstur í heiminum. Þetta sýnir framfarirnar í hnotskurn.
Fyrir rúmri öld var landið dönsk hjálenda. Borgmenning hafði ekki fest rætur og gamalt bændasamfélag var einrátt. Níu af hverjum tíu bjuggu í sveit og þjóðhátíðarárið 1874, þegar Íslendingar fengu danska stjórnarskrá, bjuggu rúmlega tvö þúsund manns í Reykjavík af 70 þúsund íbúum landsins. Nú er Ísland sjálfstætt og fullvalda ríki með trausta innviði, gott heibrigðiskerfi, þjóðin er vel menntun og auðlindir landsins miklar. Því má segja að Ísland hafi ferðast þúsund ár á einni öld.
Tunga, menning og listir
Íslensk tunga er fornlegasta tungumál Evrópu sem er styrkur því að hvert mannsbarn getur lesið bókmenntir þjóðarinnar í þúsund ár. Auk þess hefur tungan aldrei staðið sterkar. Nýyrðasmíð er öflug og fleiri nota íslenskt mál í daglegu starfi og tómstundum en nokkru sinni. Ritað er um flest þekkingarsvið samtímans á íslensku. Leikritun, ljóðagerð og skáldsagnaritun standa með blóma og nýmæli hafa komið fram í auglýsingagerð og orðanotkun.
Menning og listir blómstra, bæði leiklist, tónlist og myndlist, og staðarmenning vex um allt land og íslensk hönnun vekur athygli. Stjórnvöld og almenningur eru einhuga um málrækt og er síðasta dæmið íslensk málstefna, sem Alþingi samþykkti í mars 2009, en markmið hennar er að tryggja að íslenska verði notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Þetta er styrkur og dýrmæt sameign þjóðar.
Hrunið og hið alþjóðlega auðvald
Í lok 19. aldar var Ísland eitt fátækasta land í Evrópu. Hagtölur ársins 2002 sýna hins vegar að landsframleiðsla á mann var 10% hærri en meðaltal í löndum Evrópusambandsins. En svo kom hrunið. Í ljós kom að velsældin byggðist á svikagróða og blekkinum, sýndarmennsku og gróðafíkn.
Nú er reynt að grafast fyrir um orsakir hrunsins og stjórnvöld leita leiða til bjargar. Reynt er að finna þá sem valdir voru að ósköpunum og gerðust brotlegir við lög og er skömm þeirra mikil. Már Guðmundsson bankastjóri Seðlabankans segir í Skírnsigrein 2009 að erfitt sé að skilja flókna atburði meðan þeir gerast. Það eigi við um fjármálakreppuna sem tröllriðið hafi heimsbyggðinn, ekki síst vegna þess að áhrifin eru enn ekki komin fram og viðbrögð stjórnvalda í mótun, eins og hann segir. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur skrifaði bók um hrunið og rakti atburði frá degi til dags. Það er ljót lesning og bregður upp skuggalegri mynd af fjármálum á Íslandi þar sem fákunnátta og óheilindi einkenna öll viðskipti manna. Eftir lesturinn má efast um að fámenn þjóð geti staðið alþjóðlegu auðvaldi snúning nema til komi meiri þekking, aukinn heiðarleiki, virkara lýðræði og traust stjórn. Og nú er beðið eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Óvarlegt er að blanda sér í umræður um efnahagsmál. Þó virðist krafa hins alþjóðlega auðvalds um 20% arð af fé hljóti að leiða til ófarnaðar. Ekkert fyrirtæki getur skilað slíkum arði nema hagur starfsmanna og annarra sé fyrir borð borinn eins og í löndum þriðja heimsins þar sem enn er stundað arðrán, angi af gömlu nýlendustefnunni. Þetta arðrán - krafa hins alþjóðlega auðvalds um 20% arð var ein meginorsök hrunsins.
Umræðuhefð og stjórnmálasiðferði
Í upphafi var um það spurt hvort starfshættir stjórnmálaflokka og fjölmiðla væru með sama hætti og í nágrannalöndunum. Samanburður á starfsháttum stjórnmálamanna og umræðuhefð í Danmörku og Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar leiðir í ljós mikinn mun. Umræða er þar málefnalegri en hér. Brigslmælgi og stóryrði, sem stjórnmálamenn á Íslandi temja sér, er nær óhugsandi þar. Með slíku græfu stjórnmálamenn á Norðurlöndum sína eigin gröf. Hér eru stóryrði talin merki um djörfung og festu. Þessi umræðuhefð setur svip á störf Alþingis sem iðulega minnir meir á sjónleikahús en löggjafarsamkomu. Umræðuhefðin hefur aukið tortryggni og komið í veg fyrir eðlilegt samstarf jafnvel á örlagastundu. Má fullyrða að ein ástæða erfiðleika íslensku þjóðarinnar eigi rætur að rekja til sundurlyndis stjórnmálamanna og lélegs stjórnmálasiðferðis og frumstæðrar umræðuhefðar.
Fjölmiðlar
Íslenskir fjölmiðlar hafa lengi verið þess vanmegnugir að brjóta til mergjar og skýra atburði liðandi stundar. Veldur því margt, s.s. fámenni og eignarhald á fjölmiðlum. Sá fréttamiðill, sem ber af og nýtur mests trausts, er fréttastofa RÚV. Er vonandi að breytt skipulag og sparnaður breyti því ekki. Einstaka fréttamenn og blaðamenn eru hins vegar því marki brenndir að vilja frekar vekja athygli selja fréttir en upplýsa mál á hlutlægan hátt. Þá hafa einstaka umræðuþættir í sjónvarpi einkennst af yfirheyrsluaðferðinni þar sem stjórnandi reynir að koma höggi á viðmælanda, gera hann tortryggilegan og fella yfir honum dóm. Í stað dómstóls götunnar kjaftagangsins er því kominn dómstóll fjölmiðla. Af þeim sökum hafa iðulega ekki fengist svör við mikilsverðum spurningum og almenningur situr eftir ringlaður með óbragð í munninum. Í Danmörku og Noregi leita þáttastjórnendur svara á hlutlægan hátt og fella ekki dóma heldur er hlustendum látið eftir að draga ályktanir.
Frumstæð umræðuhefð
Ástæður frumstæðrar umræðuhefðar hér eru margar. Borgmenning hefur ekki fest rætur með þeirri tillitssemi og persónulegu fjarlægð sem einkennir slíka menningu. Fámenni veldur því einnig að úrval fréttamanna er minna, allir þykjast þekkja alla og návígið nálgast stundum hreinan dónaskap. Stéttskipting og agi hafa einnig verið með öðrum hætti en í flestum Evrópulöndum og enn eimir eftir af agaleysi bændasamfélagsins.
Yfirveguð umræða er grundvallarþáttur í lýðræðislegri endurreisn og aukinni samfélagsmenningu á Íslandi. Þar gegna fjölmiðlar mikilsverðu hlutverki - ásamt skólunum.
Samfélagssáttmáli
Íslensk þjóð hefur áður gengið gegnum erfiðleika og sigrast á þeim. Það mun hún einnig gera nú með dugnaði og samstöðu og á grundvelli dýrmætra sameigna sinna lands, sögu og tungu en einnig með aukinni menntun og mikilla náttúruauðlinda. Samhliða endurreisn efnahagslífs verður að fara pólitísk endurreisn: aukin mannvirðing og jafnrétti á öllum sviðum, meira gagnsæi, betri upplýsingar, bætt siðferði í stjórnmálum, aukinn heiðarleiki í viðskiptum og fjármálum - og bætt umræðuhefð.
Til að stuðla að þessu þarf að efna til sjálfstæðs stjórnlagaþings - stjórnlagaþings þjóðarinnar sem kosið yrði í almennum kosningum með landið sem eitt kjördæmi. Sjálfstætt stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá geta sameinað sundraða þjóð, lægt öldur og vakið von og ekki síst aukið traust á Alþingi, stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum. Ný stjórnarskrá gæti því orðið samfélagssáttmáli í kjölfar mesta áfalls í sögu íslenska lýðveldisins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.3.2010 | 21:15
Íslensk umræðuhefð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
26.3.2010 | 00:16
Farsi í Þjóðleikhúsinu
Í kvöld sá ég uppfærslu Þjóðleikhússins á Gerplu í leikstjórn Baltasar Kormáks, Ólafs Egils Egilssonar og leikhópsins. Þetta var sorgleg sjón. Hér er ekki um að ræða Gerplu HKL og því síður Fóstbræðrasögu heldur moðsuðu leikstjóranna og leikhópsins sem leggja meiri áherslu á brellur og skrípislæti en texta - að ekki sé talað um boðskap.
Í hléi ræddi ég við nokkur ungmenni sem sögðust ekki hafa lesið Gerplu og heldur ekki Fóstbræðrasögu og sögðust ekkert skilja í þessu verki og sýningin væri hundleiðinleg.
Hver tími hefur sinn stíl og hver kynslóð sín viðhorf. Ef til vill er réttlætanlegt að færa bókmenntaverk og leikverk í nýjan búning og beita leikbrögðum sem eru ný af nálinni og nýstárleg, en slíkt verður að þjóna einhverjum tilgangi - þjóna verkinu.
Þessi sýning Þjóðleikhússins var hins vegar í mínum augum farsi, að vísu allvel gerður farsi af því að margir leikendur skiluðu verki sínu vel, þótt í ljós kæmi það sem sífellt er að verða meira áberandi, að ungir leikarar ráða illa við texta - skilja ekki textann - og framsögn þeirra er stórlega ábótavant.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.3.2010 | 01:23
Heimspeki - skýr hugsun
Í kvöld, mánudagskvöld, hlustaði ég á upptöku á Silfri Egils frá því á sunnudag. M.a. hlustaði ég á Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki við Háskólann í Bifröst. Framsetning hans og tal var að mínum dómi öfgafullt og mótsagnakennt svo nokkrum undrum sætir af hans hálfu. Er mér illskiljanlegt hvers vegna heimspekingur flytur mál sitt með þessum hætti, en heimspekingar eiga að mínum dómi að vera yfirvegaðir og tala skýrt - af því að þeir hugsa skýrt.
Heimspekingurinn gerði m.a. lítið úr andófi gegn því óréttlæti sem tveir þriðju hlutar þjóðarinnar telja að felist í kröfu um að íslenskur almenningur skuli greiða Bretum og Hollendingum útlagðan kostnað vegna ICESAVE. Kallaði hann þetta andóf þjóðvarnarhyggju eða þjóðvörn sem bæri vott um einangrunarhyggju, vorkunnsemi og undarlegan grátkór. Í næsta orði segir hann svo að einangrunarhyggja Íslendinga væri skiljanleg og vel kynni að vera að Íslendingar hefðu verið hlunnfarnir og illa með þá farið. Má þá ekki mótmæla þeirri meðferð!
Þá talaði hann um gildishlaðna umræðu, sem hefði verið horfin úr þjóðfélaginu, fjandskaparumræðu, þar sem því væri m.a. haldið fram að viss öfl í þjóðfélaginu væru meðvitað að vinna gegna hagsmunum þjóðarinnar. Með þessu væri verið að saka fólk um mjög alvarlega hluti.
Í næsta orði segir heimspekingurinn svo, að það valdi sér vonbrigðum og áhyggjum þegar öfl lengst til vinstri og lengst til hægri læsi sig saman og berjist fyrir sameiginlegu máli. Þá sé eitthvað undarlegt á ferðinni. Með þessu er heimspekingurinn að saka fólk - lengst til hægri og lengst til vinstri - um alvarlega hluti. Það vekur einnig nokkra furðu að heimspekingurinn skulu ekki þekkja dæmi um það úr sögu þjóðarinnar eða heimssögunni, sem hann vitnaði gjarna til, að andstæð öfl hafa staðið saman þegar ógn eða hætta steðjaði að.
Til þess að taka þriðja dæmið um mótsögn í málflutningi Jóns Ólafssonar, má nefna að hann líkti þjóðaratkvæðagreiðslunni við kosningar í einræðisríkjum þar sem aðeins væri um einn flokk að velja, þjóðaratkvæðagreiðslan hefði ekki verið lýðræðisleg auk þess sem hún skýrði ekki neitt. Þessi orð heimspekingsins hljóma að vísu undarlega líkt og orð fjármálaráðherra á dögunum um hina sömu þjóðaratkvæðagreiðslu.
En það verð ég að segja þessum tveimur góðu drengjum, að sjaldan hefur verið skýrara í kosningum á Íslandi, að um tvo ólíka kosti var að velja: láta lög halda gildi sínu eða fella þau úr gildi - og að þjóðaratkvæðagreiðslan leysti margan vanda. Það má svo hugsanlega velta því fyrir sér á heimspekilegan, hlutlægan og yfirvegaðan hátt, hvers vegna tveir þriðju hlutar þjóðarinnar sögðu nei. En ef þjóðaratkvæðagreiðsla, sem á sér stoð í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, er orðin ólýðræðisleg, er farið að snúa flestum hlutum á haus og menn ættu að reyna að rétta sig af.
Í lok máls síns sagði Jón Ólafsson, að "heimspeki væri andóf gegn ríkjandi öflum" og þá heimspeki vildi hann stunda. Með þeim rökum hans má segja að þjóðvörn eða þjóðvarnarhyggjan, sem m.a. kom fram í afstöðu almennings í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sé heimspeki - einmitt sú heimspeki sem hann vill stunda.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
13.3.2010 | 22:23
Þekking og réttsýni
Gaman er að verða vitni að því í spurningakeppni framhaldsskólanna í "sjónvarpi allra landsmanna" hversu margt skólanemendur vita um einskisverða hluti. Það bókstaflega stendur upp úr þeim bunan.
Forðum daga var sagt, að stúdent væri sá sem vissi ekkert um allt, en fræðimaður sá sem vissi allt um ekkert. Þetta hefur sannast í spurningakeppni framhaldsskólanna og í umræðum undanfarinna mánaða. Almenningur virðist vita allt um ekkert og ráðgjafar þjóðarinnar virðast vita allt um ekkert - en enginn virðist vita muninn á réttu og röngu.
Hins vegar sýnist mér sem gömlum skólameistara, gömlum stúdent og starfandi fræðimanni, að þörf sé á því að fræðimenn, stúdentar og almenningur læri að þekkja hvað er rétt og rangt. Því held ég sjónvarpið og skólar landsmanna - frá leikskólum til háskóla - ættu að hætta spurningarugli um einskisverða hluti og taka upp fræðslu, greiningu og beina kennslu um muninn á réttu og röngu. Þegar öllu er á botninn hvolft er það sú þekking sem máli skiptir. Ef þjóðin hefði vitað mun á réttu og röngu, stæðum við ekki frammi fyrir svikum og blekkingum sem við megum nú horfa upp á og er því miður enn ekki lokið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.3.2010 | 12:56
Lán leysa ekki skuldavanda Íslendinga
Í MBL í dag er viðtal við Alex Jurshevski, hagfræðing fæddan í Kanada en sem starfað hefur víða um lönd, og hefur um 20 ára skeið rekið fyrirtækið Recovery Partners sem sérhæfir sig í skuldavanda fullvalda ríkja.
Í viðtalinu bendir Jurshevski á að aukin erlend lán leysi ekki efnahagsvanda Íslendinga. Þjóðin eigi margra annarra kosta völ en taka lán og geti unnið sig út úr vandanum án aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Íslenska ríkið geti axlað ICESAVE skuldbindingar "með réttri skuldastýringu en til þess að það dæmi gangi upp þurfi sennilega að afþakka frekari lánaveitingar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndum". Allt eins og talað út úr mínum munni!
Þetta viðtal þurfa allir að lesa sem áhuga hafa á efnahagsmálum og sjálfstæði þjóðarinnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.3.2010 | 10:34
Undarleg ummæli utanríksráðherra Svía
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.3.2010 | 15:33
Græni hatturinn á Akureyri
Gaman er til þess að vita að Sigmundur Rafn Einarsson og eiginkona hans, Guðbjörg Inga Jósefsdóttir, stofnendur Bláu könnunnar, fyrsta reyklausa kaffihúss á Íslandi, og Græna hattsins, fyrsta menningarhússins á Akureyri sem bauð upp á lifandi tónlist, skuli ætla að endurbæta og stækka Græna hattinn og gera reksturinn fjölbreyttari.
PARÍS, hið fornfræga hús þeirra hjóna, hefur frá því þau eignuðust það 1997 verið miðpunktur göngugötunnar á Akureyri og dregið til sín tugþúsundir manna víðs vegar að úr heiminum og margar myndlistarsýningarnar á annarri hæð hússins eru mér afar minnisstæðar. Ég tek minn græna hatt ofan fyrir þeim hjónum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2010 | 10:52
Lausn á Icesave - ný sýn
Afstaðan til Icesave liggur ljós fyrir. Íslenska þjóðin vill ekki taka á sig skuldir gamla Landsbankans, enda var um einkafyrirtæki að ræða, og samkvæmt lögum og reglum ESB og landslögum á Íslandi er ekki unnt að skuldbinda þriðja aðila í slíkum viðskiptum. Því verður að leita annarra leiða.
Eðileg og sanngjörn leið blasir við. Bretar og Hollendingar fá allar eignir gamla Landsbankans. Að bestu manna yfirsýn nægja þessar eignir fyrir mestum - eða öllum lágmarksgreiðslum breska og hollenska ríkissjóðsins vegna endurgreiðslu til innstæðueigenda í löndunum tveimur. Engir vextir verða greiddir né heldur útlagður kostnaður breskra og hollenskra stjórnvalda. Með þessu hafa flestir innstæðueigendur í Bretlandi og Hollandi fengið tjón sitt bætt að mestu. Komi í ljós eftir fimm eða tíu ár að eignir gamla Landsbankans nægðu ekki fyrir lágmarksgreiðslum, er hugsanlegt að ríkisstjórnir landanna þriggja setjist að samningaborði og ræði málin í bróðerni án þess hótanir um hermdarverk og hryðjuverkalög vofi yfir.
Í bönkum á Íslandi er nægilegt fé til að endurreisa atvinnu- og efnahagslíf þjóðarinnar. Til þess að bæta stöðuna þarf því engin erlend lán, enda eru erlend lán að drekkja þjóðinni, og til þess að bjarga drukknandi manni er ekki hellt ofan í hann söltum sjó. Hins vegar eru vextir of háir, eins og flestum er ljóst. Með því að lækka vexti og lána fé íslenskra innstæðueigenda þar á meðal lífeyrissjóðanna - til heiðarlegra atvinnurekenda blasir við ný sýn.
Innviðir ríkisins eru sterkir. Menntun fólks er góð. Auðlindir landsins eru miklar. Kröfunni um ný grundvallarlög - nýja stjórnarskrá, verður fylgt eftir og krafist heiðarleika og gagnsæi í stjórnmálum og viðskiptum. Fjölmörg ríki vilja - og þurfa á að halda vörum sem Íslendingar geta framleitt. Við eigum því margra kosta völ. En við hengjum ekki bakara fyrir smið heldur refsum þeim sem sekir eru.
Bloggar | Breytt 8.3.2010 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)