29.8.2013 | 09:33
Hátíð vonar - jafnrétti og bræðralag
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, hefur sýnt vilja sinn í verki, einurð og kjark með því að ætla að flytja ávarp á trúarhátíðinni Hátíð vonar sem haldin verður í Laugardalshöllinni í lok september og er samstarfsverkefni fjölmargra kirkna og kirkjudeilda. Með því segist hún styðja samstarf kristinna safnaða. En auk þess styður biskup raunverulegt skoðana- og trúfrelsi og lætur ekki undan áróðri þeirra fjölmiðla sem ganga erinda trúleysingja í landinu.
Áróður trúleysingja gegn Hátíð vonar er byggð á því að Franklin Graham, sonur Billy Graham, er ræðumaður hátíðarinnar, en hann er mótfallinn hjónaböndum samkynhneigðra og hefur talað opinberlega gegn samkynhneigð.
Áróður trúleysingja gegn Hátíð vonar er enn eitt dæmi þess, að þeir - og aðrir andstæðingar kristinnar trúar og kristinnar kirkju - beita nú þá, sem ekki eru á sömu skoðun og þeir, ofríki á sama hátt og þeir voru áður ofríki beittir. Þetta er ekki í samræmi við skoðana- og tjáningarfrelsi sem á að ríkja.
Fagna ber auknum réttindum einstaklinga hér á landi. Umræðu um mannréttindi, jafnrétti og bræðralag er þó hvergi nærri lokið. Ofstæki og áróður verður hins vegar ekki til að auka bræðralag, jafnrétti og mannréttindi. Allir skulu hafa rétt til að láta í ljós skoðanir sínar. Líka þeir sem eru mótfallnir hjónaböndum samkynhneigðra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.8.2013 | 22:04
Reykjavík - höfuðborg allra landsmanna
Seint virðist sumum forráðamönnum Reykjavíkurborgar ætla að skiljast, að Reykjavík er höfuðborð Íslands - höfuðborg allra landsmanna með öllum þeim gögnum og gæðum, kostum og göllum sem slíku fylgir.
Við Akureyringar hefðum gjarnan viljað afsala okkur atkvæðisrétti í Alþingiskosningum til þess að fá löggjafarþingið, stjórnarráðið, Háskóla Íslands og Landspítalann norður og leggja land undir flugvöll - en þess mun ekki kostur.
Enn er af hálfu þessara forráðamanna Reykjavíkurborgar farið af stað með umræðu um að leggja þurfi Reykjavíkurflugvöll undir byggð til þess að geta gert borgina lífvænlegri. Það eru aðrir hlutir sem gera borg lífvænlega og að því hafa borgarbúar - Reykvíkingar - stuðlað með margvíslegum hætti undanfarna áratugi. En með því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður í sinni núvarandi mynd, er verið að skera hjartað úr borginni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)