15.10.2010 | 13:59
Framboð til stjórnlagaþings
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til stjórnlagaþings. Ástæðan er sú, að ég vil leggja mitt af mörkum til að móta nýja stjórnarskrá sem tryggi lýðræðisleg mannréttindi, félagslegt öryggi, jafnrétti á öllum sviðum og frelsi til orða og athafna.
Ný stjórnarskrá skal treysta undirstöður lýðræðis, sem er mannvirðing og umburðarlyndi, og tryggja skýra þrískiptingu valds, eignarhald þjóðarinnar á auðlindum, landsréttindi og umhverfisrétt sem móta samskipti fólks við umhverfi sitt.
Ný stjórnarskrá skal reist á traustri siðvitund og stuðla að virðingu fyrir sögu Íslands og hefðum íslenskrar tungu, rituð á vönduðu máli og vera stuttorð og gagnorð svo allir skilji.
Bloggar | Breytt 18.10.2010 kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)