15.5.2012 | 12:29
Stjórnmálaflokkurinnn ORG
Ólafur Ragnar Grímsson hefur í aðdraganda forsetakosninganna komið fram sem stjórnmálaflokkur eins manns. Í krafti embættis forseta Íslands ætlar hann að leiða villuráfandi sauði fram hjá ógnum sem bíða þjóðarinnar tryggja að hlutirnir fari ekki hér úr skorðum, eins og hann sagði í viðtali við Sigurjón Egilsson á Bylgjunni, þar sem hann talaði um sjálfan sig í fleirtölu eins og einvaldskonungar fyrri tíðar gerðu: Vi alene vide.
Forseti Íslands
er sameiningartákn ekki stjórnmálaflokkur,
kemur fram fyrir hönd Íslendinga undir merki menningar og mannúðar,
er hógvær fulltrúi nýrrar hugsunar og nýrra tíma,
er hafinn yfir flokkadrætti og væringar án undirmála,
tengist ekki pólitískum flokkadráttum fyrri tíðar,
stuðlar að sátt allra af hógværð, vitur og íhugull,
lítur inn á við, gagnrýninn á sjálfan sig og þjóð sína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)