Stjórnlagaþing - samfélagssáttmáli

Atburðir undanfarin misseri hafa vakið til umhugsunar um hvað sameini þessa sundruðu þjóð, hver séu gildi samfélagsins og styrkur íslenskrar menningar - og hvort fámenn þjóð, sem eitt sinn var talin búa á mörkum hins byggilega heims, geti staðið auðvaldi heimsins snúning á tímum hnattvæðingar. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort starfshættir stjórnmálaflokka og fjölmiðla á Íslandi séu með svipuðum hætti og hjá frændþjóðum okkar, en í ljós hefur komið að siðferði í stjórnmálum og traustir fjölmiðlar skipta sköpum fyrir virkt lýðræði og farsælt stjórnarfar.

Land, þjóð og tunga

Þrennt sameinar þjóð. Í fyrsta lagi landið sem hún byggir. Í öðru lagi sagan og í þriðja lagi tungan sem þjóðin hefur alið af sér. Engin þjóðernishyggja býr að baki þessum orðum heldur eiga þau við allar þjóðir sem ala með sér vitund um að vera þjóð.

Landið, sagan og þjóðin

Lengi virtist Ísland aðeins geta brauðfætt um 50 þúsund manns vegna lélegs verðurfars, lítillar verkmenningar og brogaðs stjórnarfars. Á 18. öld, erfiðustu öld í sögu þjóðarinnar, fækkaði fólki stöðugt. Í upphafi aldar voru landsmenn um 50 þúsund, álíka margir og þeir höfðu verið um 1200. Í Stóru bólu 1706-1709 fækkaði fólki um þriðjung. Urðu Íslendingar þá aðeins um 36 þúsund og hafa aldrei orðið færri í sögu þjóðarinnar. Til samanburðar má nefna að mannfjöldi í Danmörku og Noregi hafði þá þrefaldaðist frá því um 1200. Ísland var á þessum tíma talið á mörkum hins byggilega heims.

Fólksfjölgun er nú meiri á Íslandi en í flestum öðrum löndum Evrópu. Veðurfar hefur batnað, verkkunnátta er sambærileg við verkkunnáttu í nágrannalöndunum og landgæði eru mikil: ósnortin víðerni, auðug fiskimið, orka í fallvötnum og jarðvarma, hreint vatn og hreint loft og stórbrotin og fjölbreytileg náttúra. Ræktun og uppgræðsla hefur tekið algerum stakkaskiptum, skógrækt er orðin atvinnugrein og farið að rækta korn og grænmetisrækt á sér framtíð ef rétt er á haldið. 

Þúsund ár á einni öld

Styrkur íslensku þjóðarinnar felst í fleiru. Á einni öld hefur samfélagið breyst úr einagruðu bændasamfélagi í margskipt þekkingarþjóðfélag í stöðugum tengslum við umheiminn. Menntun er sambærileg menntun nágrannaþjóðanna. Rannsóknir og vísindi hafa stóreflst. Sem dæmi þar um má nefna að 1950 höfðu örfáir tugir Íslendinga lokið doktorsprófi. Nú skipta íslenskir doktorar þúsundum. Heilsugæsla er ekki síðri en í nágrannalöndunum og barnadauði, sem í lok 19. aldar var hæstur á Íslandi allra Evrópulanda, er nú lægstur í heiminum. Þetta sýnir framfarirnar í hnotskurn.

Fyrir rúmri öld var landið dönsk hjálenda. Borgmenning hafði ekki fest rætur og gamalt bændasamfélag var einrátt. Níu af hverjum tíu bjuggu í sveit og þjóðhátíðarárið 1874, þegar Íslendingar fengu danska stjórnarskrá, bjuggu rúmlega tvö þúsund manns í Reykjavík af 70 þúsund íbúum landsins. Nú er Ísland sjálfstætt og fullvalda ríki með trausta innviði, gott heibrigðiskerfi, þjóðin er vel menntun og auðlindir landsins miklar. Því má segja að Ísland hafi ferðast þúsund ár á einni öld.

Tunga, menning og listir

Íslensk tunga er fornlegasta tungumál Evrópu – sem er styrkur því að hvert mannsbarn getur lesið bókmenntir þjóðarinnar í þúsund ár. Auk þess hefur tungan aldrei staðið sterkar. Nýyrðasmíð er öflug og fleiri nota íslenskt mál í daglegu starfi og tómstundum en nokkru sinni. Ritað er um flest þekkingarsvið samtímans á íslensku. Leikritun, ljóðagerð og skáldsagnaritun standa með blóma og nýmæli hafa komið fram í auglýsingagerð og orðanotkun.

Menning og listir blómstra, bæði leiklist, tónlist og myndlist, og staðarmenning vex um allt land og íslensk hönnun vekur athygli. Stjórnvöld og almenningur eru einhuga um málrækt og er síðasta dæmið íslensk málstefna, sem Alþingi samþykkti í mars 2009, en markmið hennar er að tryggja að íslenska verði notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Þetta er styrkur og dýrmæt sameign þjóðar.

Hrunið og hið alþjóðlega auðvald

Í lok 19. aldar var Ísland eitt fátækasta land í Evrópu. Hagtölur ársins 2002 sýna hins vegar að landsframleiðsla á mann var 10% hærri en meðaltal í löndum Evrópusambandsins. En svo kom hrunið. Í ljós kom að velsældin byggðist á svikagróða og blekkinum, sýndarmennsku og gróðafíkn.

Nú er reynt að grafast fyrir um orsakir hrunsins og stjórnvöld leita leiða til bjargar. Reynt er að finna þá sem valdir voru að ósköpunum og gerðust brotlegir við lög – og er skömm þeirra mikil. Már Guðmundsson bankastjóri Seðlabankans segir í Skírnsigrein 2009 að erfitt sé að skilja flókna atburði meðan þeir gerast. Það eigi við um fjármálakreppuna sem tröllriðið hafi heimsbyggðinn, ekki síst vegna þess að áhrifin eru enn ekki komin fram og viðbrögð stjórnvalda í mótun, eins  og hann segir. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur skrifaði bók um hrunið og rakti atburði frá degi til dags. Það er ljót lesning og bregður upp skuggalegri mynd af fjármálum á Íslandi þar sem fákunnátta og óheilindi einkenna öll viðskipti manna. Eftir lesturinn má efast um að fámenn þjóð geti staðið alþjóðlegu auðvaldi snúning nema til komi meiri þekking, aukinn heiðarleiki, virkara lýðræði og traust stjórn. Og nú er beðið eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Óvarlegt er að blanda sér í umræður um efnahagsmál. Þó virðist krafa hins alþjóðlega auðvalds um 20% arð af fé hljóti að leiða til ófarnaðar. Ekkert fyrirtæki getur skilað slíkum arði nema hagur starfsmanna og annarra sé fyrir borð borinn eins og í löndum þriðja heimsins þar sem enn er stundað arðrán, angi af gömlu nýlendustefnunni. Þetta arðrán - krafa hins alþjóðlega auðvalds um 20% arð var ein meginorsök hrunsins.

Umræðuhefð og stjórnmálasiðferði

Í upphafi var um það spurt hvort starfshættir stjórnmálaflokka og fjölmiðla væru með sama hætti og í nágrannalöndunum. Samanburður á starfsháttum stjórnmálamanna og umræðuhefð í Danmörku og Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar leiðir í ljós mikinn mun. Umræða er þar málefnalegri en hér. Brigslmælgi og stóryrði, sem stjórnmálamenn á Íslandi temja sér, er nær óhugsandi þar. Með slíku græfu stjórnmálamenn á Norðurlöndum sína eigin gröf. Hér eru stóryrði talin merki um djörfung og festu. Þessi umræðuhefð setur svip á störf Alþingis sem iðulega minnir meir á sjónleikahús en löggjafarsamkomu. Umræðuhefðin hefur aukið tortryggni og komið í veg fyrir eðlilegt samstarf – jafnvel á örlagastundu. Má fullyrða að ein ástæða erfiðleika íslensku þjóðarinnar eigi rætur að rekja til sundurlyndis stjórnmálamanna og lélegs stjórnmálasiðferðis og frumstæðrar umræðuhefðar.

Fjölmiðlar

Íslenskir fjölmiðlar hafa lengi verið þess vanmegnugir að brjóta til mergjar og skýra atburði liðandi stundar. Veldur því margt, s.s. fámenni og eignarhald á fjölmiðlum. Sá fréttamiðill, sem ber af og nýtur mests trausts, er fréttastofa RÚV. Er vonandi að breytt skipulag og sparnaður breyti því ekki. Einstaka fréttamenn og blaðamenn eru hins vegar því marki brenndir að vilja frekar vekja athygli – selja fréttir – en upplýsa mál á hlutlægan hátt. Þá hafa einstaka umræðuþættir í sjónvarpi einkennst af yfirheyrsluaðferðinni þar sem stjórnandi reynir að koma höggi á viðmælanda, gera hann tortryggilegan og fella yfir honum dóm. Í stað dómstóls götunnar – kjaftagangsins – er því kominn dómstóll fjölmiðla. Af þeim sökum hafa iðulega ekki fengist svör við mikilsverðum spurningum og almenningur situr eftir ringlaður með óbragð í munninum. Í Danmörku og Noregi leita þáttastjórnendur svara á hlutlægan hátt og fella ekki dóma – heldur er hlustendum látið eftir að draga ályktanir.

Frumstæð umræðuhefð

Ástæður frumstæðrar umræðuhefðar hér eru margar. Borgmenning hefur ekki fest rætur með þeirri tillitssemi og persónulegu fjarlægð sem einkennir slíka menningu. Fámenni veldur því einnig að úrval fréttamanna er minna, allir þykjast þekkja alla og návígið nálgast stundum hreinan dónaskap. Stéttskipting og agi hafa einnig verið með öðrum hætti en í flestum Evrópulöndum og enn eimir eftir af agaleysi bændasamfélagsins.

Yfirveguð umræða er grundvallarþáttur í lýðræðislegri endurreisn og aukinni samfélagsmenningu á Íslandi. Þar gegna fjölmiðlar mikilsverðu hlutverki - ásamt skólunum.

Samfélagssáttmáli

Íslensk þjóð hefur áður gengið gegnum erfiðleika og sigrast á þeim. Það mun hún einnig gera nú með dugnaði og samstöðu og á grundvelli dýrmætra sameigna sinna – lands, sögu og tungu en einnig með aukinni menntun og mikilla náttúruauðlinda. Samhliða endurreisn efnahagslífs verður að fara pólitísk endurreisn: aukin mannvirðing og jafnrétti á öllum sviðum, meira gagnsæi, betri upplýsingar, bætt siðferði í stjórnmálum, aukinn heiðarleiki í viðskiptum og fjármálum - og bætt umræðuhefð.

Til að stuðla að þessu þarf að efna til sjálfstæðs stjórnlagaþings - stjórnlagaþings þjóðarinnar sem kosið yrði í almennum kosningum með landið sem eitt kjördæmi. Sjálfstætt stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá geta sameinað sundraða þjóð, lægt öldur og vakið von – og ekki síst aukið traust á Alþingi, stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum. Ný stjórnarskrá gæti því orðið samfélagssáttmáli í kjölfar mesta áfalls í sögu íslenska lýðveldisins. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þó svo að ég sé sammála þér Tryggi bæði hvað varðar umræðuhefðina og hvað varðar nauðsyn þess að boðað sé til stjórnlagaþings og ný stjórnarskráin samin, þá held ég að tengingin þarna á milli sé "non sequitur" eins og þú setur hana upp. Ég get ekki séð að stjórnlagaþing/nýja stjórnarskrá geti verið lausn á vanþroskaðri umræðuhefð og ósamstöðu meðal þjóðarinnar.

Þvert á móti er hætt við að sú hin sama umræðuhefð sem hér ríkir muni spilla fyrir undirbúningi stjórnlagaþings, umræðu á þinginu og umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Loks mun hún, ásamt virðingarleysi fyrir lögum og lýðræðislegri umræðu, valda því að ný stjórnarskrá verður frá upphafi jafn gagnslaust plagg og sú núverandi. Forsetar og ráðherrar sem eru nógu óbilgjarnir og sjálfumglaðir munu halda áfram að endurtúlka hana eftir eigin höfði sem hingað til. Ég hygg að það sé ráð fyrir vísa menn og konur að hyggja þessari hættu og hvernig bregðast megi við. Við þurfum nýjan þjóðfélagssáttmála þar sem við temjum okkur virðingu fyrir öðrum og rétti annarra.

Ný stjórnarskrá verður hins vegar ekki nema að litlu leyti "samfélagssáttmáli". Hún mun að vísu þurfa að taka á lykilmálum eins og t.d. tengslum þjóðarinnar við landið, auðlindir, mannréttindi o.þ.h. Fyrst og síðast snýst hún þó um að endurskipuleggja tengsl hinna ýmsu valdþátta stjórnkerfisins, kveða á um hver beri ábyrgð á hverju, hvaða afleiðingar það hafi valdi menn ekki ábyrgðinni, hvernig eftirliti sé háttað, hvernig skjota megi ágreiningi um túlkun stjórnarskrárinnar til dómstóla, hver sé aðkoma almennings að ákvörðunum o.s.frv.

Við þurfum menningarbyltingu og nýja stjórnarskrá. Það verður hins vegar ekki bylting i hugarfarinu með því einfaldlega að setja nýja stjórnarskrá. Ég get þó verið sammála þér að ný stjórnarskrá, einkum þó umræðan í kringum hana og stjórnlagaþingið, getur verið hjálpleg við að siðvæða stjórnmálin hér á landi. Það getur þó brugðið til beggja vona.

Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 15:12

2 identicon

You did a good job!

mbt shoes (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 06:58

3 identicon

Það er gaman að lesa skrifin þín, en ekki er ég sammála því, að íslenzk tunga hafi aldrei staðið sterkar. Mér virðist þvert á móti, að málið okkar sé að hrynja til grunna. Eins og einn skólabróðir minn, Njörður P. Njarðvík, segir, bendir allt til þess, að beygingarkerfið verði horfið eftir einn mannsaldur eða tæplega það. Ambögurnar og vitleysurnar sem heyrast í daglegu máli og hjá þeim sem koma fram í fjölmiðlum, eru skelfilegar. Það læðist sá grunur að, að hætt sé að kenna íslenzku í grunnskólum landsins. Flestir tönnlast á orðinnu hérna sem er stundum annaðhvert orð í setningunni. Flestir fara nú erlendis í staðinn fyrir til útlanda og svona má halda áfram í það óendanlega.

Kveðja

 Júlíus

Júlíus Sólnes (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 20:38

4 identicon

The specially designed of mbt shoes significantly improves both your posture and your gait. The uniquely designed of MBT, combined with correct training, achieves a more active and healthy posture and walk. Wearing mbt shoes will burn extra calories, help to regenerate muscles. Cheap mbt shoes sale in MBTag.com.

mbt shoes (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 07:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband