"Dóttir mín á vinkonu" - orð gamals leiðtoga ASÍ

Ásmundur Stefánsson, núverandi bankastjóri LÍ, áður hagfræðingur ASÍ, framkvæmdastjóri og forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Íslandsbanka, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Íslands, stundakennari við MH og cand. polit. í hagfræði 1972 frá Kaupmannahafnarháskóla kom í Kastljós í kvöld.

Það vakti furðu okkar gamalla framsóknarmanna að norðan hversu gamlir byltingarmenn að sunnan eldast illa. Þeir tala ekki lengur um hagsmuni almennings í kerfishruni heimilanna í landinu - alþýðan er ekki nefnd á nafn - heldur tekin dæmi um að dóttir Ásmundar eigi vinkonu sem eigi í erfiðleikum með að flísaleggja gólfið heima hjá sér. Sjálfur segir hann sig ekki muna mikið um að skulda tíu milljónir í húsinu sínu, sem metið er á 300 milljónir króna, eftir að hafa ráðið sjálfan sig bankastjóra LÍ - þá formaður bankaráðs LÍ. Gaman væri að vita hverjar eru ævitekjur þessa gamla alþýðuforingja.

Sighvatur skáld Þórðarsonar frá Apavatni í Grímsnesi, sem  talinn er dauður 1045, fór mikla svaðilför um Svíþjóð fyrir vin sinn Ólaf hinn helga Haraldsson Noregskonung að njósna um óvini konungs.  Gisti hann hjá þeim manni sem kallaður var "besti þegn konungs".  Ekki leist Sighvati skáldi betur en svo á þennan besta mann konungs að hann sagði í vísu einni: Þá er hinn versti illur ef þessi er hinn besti. Held ég þó göllum manna lítið á loft.

Sama segi ég: Þá er hinn versti illur ef þessi er hinn besti. Held ég þó göllum manna lítið á loft.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er eins og alþýðan í landinu sé ekki lengur til! Hvar er sjómaðurinn í fréttum, ræstingakonan, kennarinn, smiðurinn, píparinn, já og flísaleggjarinn? Það er alltaf verið að tala við sérfræðinga sem eru ekki í neinum tengslum við fólkið í landinu en þeim mun betur við tölur á pappírum. Fólkið í landinu bæði finnur meira fyrir þeim þrengingum sem ganga yfir og svo kann það að skýra frá ástandinu á mannamáli en ekki með sértækum hugtökum sem lært fólk ber fyrir sig því það kann ekki annað betra. Þekkingin sem alþýðan í landinu skilar sér ekki í fjölmiðlana, því miður, vegna ofurtrúar á sérfræðiþekkingu þeirra í fílabeinsturninum.

Unnur H. Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 22:15

2 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Vel mælt skólameistari.

Jón Baldur Lorange, 30.3.2010 kl. 00:05

3 identicon

You did a good job!

mbt shoes (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 06:56

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Alveg komst þú nú slysalaust frá þessum samanburði á þessum fulltrúum ólíkra gilda. Betur hygg ég að Sighvatur Þórðarson muni eldast með sögu þjóðarinnar en Ásmundur Stefánsson.

Sannarlega er það slysalegt þegar nafnkunnir menn sýna svona áberandi geymsluskemmdir.

Árni Gunnarsson, 30.3.2010 kl. 10:09

5 identicon

Hvernig færðu það út að hús Ásmundar sé metið á 300 milljónir? Það er ansi svakaleg upphæð.

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 1.4.2010 kl. 11:33

6 identicon

The specially designed of mbt shoes significantly improves both your posture and your gait. The uniquely designed of MBT, combined with correct training, achieves a more active and healthy posture and walk. Wearing mbt shoes will burn extra calories, help to regenerate muscles. Cheap mbt shoes sale in MBTag.com.

mbt shoes (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 05:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband