4.11.2010 | 23:56
Íslensk umræðuhefð
Í kvöld horfði ég á vikulegan umræðuþátt í norska sjónvarpinu, DEBATT, eins og þátturinn nefnist. Rætt var um njósnir Bandaríkjamanna í Noregi, viðkvæmt efni og óskiljanlegt: að "vinaþjóð", sem svo er nefnd, brjóti lög samstarfsþjóðar.
En það var ekki þetta sem ég ætlaði að ræða um nú undir miðnætti, heldur hvernig rætt var um þetta viðkvæma mál í norskum stjórnmálum sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Skoðanir voru skiptar og skoðanaskipti hörð og einörð. Hins vegar sýndu viðmælendur öðrum virðingu og tóku aldrei fram í fyrir öðrum, því síður þeir notuðu háð og brigslmælgi.
Mér varð hugsað til umræðu á Alþingi fyrr í dag, elsta þings í Evrópu, eins og kallað er, þar sem sama hanaatið fer fram og áður, ómálefnaleg umræða, skortur á virðingu og skortur á hugmyndum þegar landið er að sökkva. Þingmenn þyrftu sannarlega að snúa bökum saman og finna leiðir til lausnar, lausnir sem liggja í augum uppi fyrir þá sem sjáandi eru. Alþingismenn Íslendinga eru hins vegar blindir - og haga sér eins og götustrákar.
Athugasemdir
Íslenskum stjórnmálamönnum virðist ómögulegt að skilja að þeir eru hluti af vandamálinu.
Hrannar Baldursson, 5.11.2010 kl. 05:58
Þið hafið svo rétt fyrir ykkur báðir tveir. Það er alltaf hátíð þegar horft er á þessa þætti í norska sjónvarpinu. En ekki læra þeir hér nokkurn skapaðan hlut um umræðu og viðtalstækni sem þá mætti nota í þinginu eins og þú meinar Hrannar.Og Tryggvi, virðing er gleymd og grafinn og öll þessi mælska sem þó fannst hér áður fyrr og þótti fínt, hún er líka gleymd og grafinn.
Eyjólfur Jónsson, 5.11.2010 kl. 19:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.