11.4.2011 | 22:25
Rembingshnútur
Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, fyrrverandi seðlabankastjóri og fyrrverandi skólastjóri í Bifröst, skrifar grein í Fréttablaðið í dag - mánudag til mæðu. Greinina kallar hann Allt í hnút.
Í tíu punktum rekur hann horfur eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem eru: (1) pólitískt vikur forseti, beint lýðræði að ákvörðun hans, (2) kreppa í stjórnskipan, (3) umsókn um aðild að ESB gjörtapað mál, (4) utanríkisráðuneytið hefur ekki skilning á aðildarumsókn, (5) ríkisstjórnin helsærð og helsjúk, (6) kreppa í báðum stjórnarflokkum, (7) sjálfstæðismenn þurfa mánuði til að ná áttum, (8) framsóknarmenn eiga aðeins kost á að vera stoð við Sjálfstæðisflokkinn, (9) fram undan þóf, tafir og streita í flestum þjóðmálum, (10) óskynsamlegar skattabreytingar leggjast á atvinnulífið og þar harðnar á dalnum.
Í lok greinarinnar segir höfundur: Í grunni er íslensks þjóðfélagið sterkt, lýðræðið er virkt og útflutningagreinarnar öflugar. Veikleikar okkar Íslendinga eru sundrung, tortryggni, rógur og níð. Hér er allt í hnút."
Í mínum augum stangast greining og niðurstöður á. Hvernig getur íslenskt þjóðfélag verið sterkt þegar allt er í hnút? En með bölmóði sínum sannar höfundur fullyrðingu sína: Veikleikar Íslendinga eru sundrung, tortryggni, rógur og níð.
Athugasemdir
Lesturinn minnti mig á opinberunarbókina, sem jú er uppfull af galli og brennisteini, en ekki síst af himinhrópandi þversögnum og kjánaskap.
Það hlæði mig mikið að lesa þetta.
Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.