5.3.2012 | 00:14
Nýr forseti nýs Íslands
Fólk veltir fyrir sér öðrum og betri valkosti á Bessastaði eins og eðlilegt er. Að mínum dómi á forseti Íslands fyrst og síðast að vera sameiningartákn þjóðarinnar og koma fram fyrir hönd hennar allrar án undirmála, hafinn yfir flokkadrætti og væringar.


Forseti Íslands á að stuðla að sátt og samlyndi meðal allra Íslendinga af hreinskilni og hógværð, vitur maður og íhugull og sannmenntaður. Nýr forseti Íslands á að búa yfir þekkingu á sögu og menningu Íslendinga og annarra þjóða, víðsýnn og umburðarlyndur.


Nýr forseti nýs Íslands má ekki að tengjast pólitískum flokkadráttum fyrri tíðar og svikum og ránum fjárglæframanna. Hann á að líta inn á við en ekki að telja þjóðinni trú um að upphefð hennar komi að utan né heldur að hún geti frelsað heiminn undir leiðsögn hans. 


Þennan nýja forseta nýrrar hugsunar nýs Íslands karl eða konu skulum við finna í sameiningu.
Athugasemdir
Hvar og hvað er þetta ¨Nýja Ísland" sem þú ert að tala um?
Agla, 5.3.2012 kl. 19:30
Það er Ísland framtíðarinnar, Agla, með nýjum reglum, nýrri stjórnarskrá og nýrri hugsun. En nýtt Ísland verður ekki til af sjálfu sér. Þú verður að leggja þitt af mörkum.
Tryggvi Gíslason, 5.3.2012 kl. 20:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.