Fremstur meðal jafningja - og stjórnmálaflokkur eins manns

Árið 1968 var Kristján Eldjárn kjörinn forseti með 65% greiddra atkvæða, þótt á móti honum færi einn af mikilhæfustu stjórnmálamönnum aldarinnar, hógvær lærdómsmaður, Gunnar Thoroddsen, sem hlaut aðeins tæp 35%, enda þótt að baki honum stæði Sjálfstæðisflokkurinn heill og óskiptur auk margra valdamanna þjóðarinnar. Stuðningsmenn Kristjáns Eldjárn völdu honum einkunnarorðin fremstur meðal jafningja.

En hvers vegna kaus íslenska þjóðin til forseta hógværan og lítillátan fræðimann, sem einkum var kunnur almenningi af útvarps- og sjónvarpsþáttum um forna menningu þjóðarinnar, en höfnuðu margreyndum stjórnmálamanni á þeim miklu umbrota- og átakatímum sem ríktu í landinu – og raunar heiminum öllum? Átök þessara ára voru mikil og mikil óvissa ríkjandi. Kalda stríðið var í algleymingi og heiftúðug átök innan NATO vegna valdaráns herforingjanna í Grikklandi. Eftir "vorið í Praha" gerði Varsjárbandalagið innrás í Tékkóslóvakíu í ágúst 1968 og heimurinn rambaði á barmi styrjaldar.

Gengi íslensku krónunnar var þetta ár lækkað um 35.3% vegna lélegra aflabragða og lækkandi fiskverðs. Hatrammar deilur urðu á Alþingi og ASÍ mótmælti „harðlega, eindregið og einhuga þeirri stórfelldu ásás á launakjör alþýðu”. Aðsúgur var gerður að forsætisráðherra á götum úti og þúsundir Íslendinga fluttust af landi brott vegna atvinnuleysis. Hafís var fyrir Norðurlandi og Austfjörðum og ísbrú milli Íslands og Grænlands. Árið 1968 – þegar Kristján Eldjárn var kjörinn forseti – var því ekki síður umbrota- og óvissutími en nú – á því herrans ári 2012.

Engum Íslendingi datt hins vegar í hug árið 1968 að forseti Íslands ætti að bjarga atvinnuvegum og efnahag þjóðarinnar eða heimsfriðnum – allra síst forsetanum sjálfum. Slíkt stórlæti var Kristjáni Eldjárn fjarlægt. Frá því hann talaði fyrst til þjóðarinnar við embættistöku sína 1. ágúst 1968 þar til að hann ávarpaði Alþingi við þinglausnir 25. maí 1980, lagði hann áherslu á það sem sameinaði þjóðina – og hann talaði til allrar þjóðarinnar – ekki einkum til afreksmanna á sviði viðskipta og atvinnulífs – og hann lagði áherslu á það sem sameinaði þjóðina og gerði Íslendinga að þjóð. Enginn efaðist heldur um heiðarleika og einlægni Kristjáns Eldjárns sem forseta.

Nú tala skillitlir menn um, að Ólafur Ragnar Grímsson verði að „standa vaktina” áfram sem forseti og sjá til þess að Ísland – og jafnvel heimurinn allur bjargist – komist klakklaust út úr þeim vanda – óvissutímanum sem að steðjar. Sjálfur fer Ólafur Ragnar Grímsson fremstur í þeim flokki og þykist ekki gera sér grein fyrir, að það eru aðrir sem eiga að standa þá vakt í þingræðis- og lýðræðislandi: löggjafarþing, ríkisstjórn – og dómstólar. Aldrei minnist Ólafur Ragnar Grímsson í kosningabaráttu sinni á „land, þjóð og tungu”, sögu þjóðarinnar eða það sem sameinar hana – heldur miklar fyrir sér og öðrum óvissuna og hættuna, sem að steðjar. Slíkt hentar betur í þeim hræðsluáróði sem hann notar í málrófi sínu og virðist falla mörgum vel.

Sannarlega eru blikur á lofti – eins og verið hafa í þúsund ára sögu þjóðarinnar. En það er ekki hræðslan sem bjargar Íslendingum – né öðrum þjóðum, heldur samstaða og sameiginlegur arfur, réttlæti og heiðarleiki, heiðarlegur forseti sem þekkir takmörk sín, stendur sína plikt sem forseti, ekki sem stjórnmálamaður – stjórnmálaflokkur eins manns.

Greinin birtist í FRÉTTABLAÐINU 21. júní 2012 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Emilsson

Málið er miklu alvarlegra nú. Stjórnvöld Islands eru á góðri leið með að framselja Lýðveldið Island til Stór Þýskalands. Hr. Olafur Ragnar Grímsson Forseti Islands er sá eini af frambjóðendunum sem sannir íslendingar treysta til að halda vörð um sjálfstæði þjóðarinnar.

Björn Emilsson, 21.6.2012 kl. 20:54

2 Smámynd: Tryggvi Gíslason

Óttastu ekki, Björn Emilsson. ÓRG verður EKKI kjörinn forseti og því síður eiga Íslendingar eftir að gerast aðilar að ESB.

Tryggvi Gíslason, 21.6.2012 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband