Notendamiðað heilbrigðiskerfi - aldraðir og sjúkir utangarðs.

Ekki ætti að þurfa að benda á mikilvægi heilbrigðisþjónustu frá vöggu til grafar. Hins vegar hafa yfirvöld – Alþingi, ríkisstjórn og yfirstjórn stærstu sjúkrastofnana landsins – látið undir höfuð leggjast að móta heildarstefnu í heilbrigðismálum við breyttar aðstæður: breytingar á búsetu, breytta atvinnuhætti, breytt mataræði og andspænis þeirri dýru en dýrmætu staðreynd að fólk lifir lengur. Nýir sjúkdómar hafa komið fram vegna breyttra samskipta, breyttra viðhorfa og breyttra lifnaðarhátta.

Mótun heildarstefnu í heilbrigðismálum er því knýjandi nauðsyn þar sem tillit er tekið til breytta þarfa undir kjörorðinu notendamiðað heilbrigðis- og velferðarkerfi.

Hollvinasamtök líkardeilda hafa því ákveðið að halda ráðstefnu í Reykjavík í september um mótun heildarstefnu í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Meginumræðuefni á ráðstefnunni er notendamiðað heilbrigðis- og velferðarkerfi. Með því er átt við kerfi sem mótað er í samráði við sjúka og aldraðra og aðstandendur þeirra svo og fulltrúa starfsfólks heilbrigðisþjónustunnar en ekki eingöngu mótað af forstöðumönnum spítala og starfsfólki Heilbrigðis- og velferðarráðuneytisins. Gerð er krafa um að Alþingi móti þegar í stað heildarstefnu í heilbrigðismálum þjóðarinnar með tilliti til þarfa notenda og á  grundvelli samráðs við sjúka og aldraðra og aðstandendur þeirra svo og fulltrúa starfsfólks heilbrigðisþjónustunnar.

Fyrirmynd notendamiðaðrar heilbrigðisþjónustu er áætlun Norðmanna sem nefnd er Samhandlingsreformen og er byggð á lögum Stórþingsins frá því í fyrra. Er áætlunin í samræmi við nýja stefnu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO. Þessi skipan heilbrigðisþjónustu í Noregi tók gildi í upphafi árs og er ætlað að taka tillit til þarfa sjúklinga á öllum stigum og með aðkomu fulltrúa almennings þar í landi.

Til ráðstefnunnar verður boðið fulltrúum samtaka aðstandenda sjúkra og aldraðra, frjálsum samtökum um almannavarnir og heilbrigðis og velferðarmál, stéttarfélögum lækna og hjúkrunarfólks, fulltrúum sjúkrastofnana, heilsugæslustöðva og sveitarfélaga svo og alþingismönnum og ráðherrum.

Sjá Morgunblaðið 12. júlí 2012 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband