28.4.2013 | 21:33
Þjóðstjórn er eina leiðin
Fyrir dyrum er stjórnarmyndun eftir stutta en snarpa kosningabaráttu undanfarinna vikna í kjölfar endurreisnarinnar eftir Hrunið, þar sem enginn vissi hvort heldur hann var seldur eða gefinn. Margar leiðir virðast færar.
Skynsamlegasta leiðin - leið sem gæti sameinað þessa sundruðu þjóð - er þjóðstjórn - samlingsregering - eins og við Danir segjum.
Með því að atvinnustjórnmálamenn - alþingismenn sem þjóðin hefur kjörið - sameinist um að finna leiðir út úr vandanum, er von til þess að þessi voðalega þjóð þrjú hundruð þúsund sérvitra einstaklinga - geti litið á sig sem eina þjóð - er þjóðstjórn. Hafi stjórnmálamenn einhverju hlutverki að gegna, er það að finna sameiginlega leið til framtíðar. Sú leið verður aðeins fundin í þjóðstjórn þar sem allir bera ábyrgð.
Athugasemdir
Ef þú myndir minnka aðeins stafaruglið þitt gæti ég hugsanlega hlustað á þig ...;)
Egill Þór Sigurgeirsson (IP-tala skráð) 29.4.2013 kl. 03:08
Ég tek undir með, Agli.
Eyjólfur G Svavarsson, 29.4.2013 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.