16.2.2014 | 23:40
Þrætubókarlist íslenskra átakastjórnmála
Eftir að hafa hlustað á viðtal Gísla Marteins við forsætisráðherra get ég tekið undir orð Gísla Marteins - Vá, furðulegt viðtal - ekki aðeins vegna þess hvað forsætisráðherra sagði og gerði heldur ekki síður vegna þess hvernig Gísli Marteinn hegðaði sér.
Sem gamall fréttamaður á gömlu Fréttastofu gamla Ríkisútvarpsins furða ég mig á sífelldum framíköllum Gísla Marteins og stöðugum tilraunum hans til þess að túlka orð forsætisráðherra. Vikulega horfi ég á sambærilega þætti í danska og norska sjónvarpinu og slík framkoma þáttastjórnenda þar er bæði óþekkt og óhugsandi. Þar stunda þáttastjórnendur ekki orðaskak við viðmælendur sína heldur reyna að kasta ljósi á viðfangsefnið.
Þrætubókarlist kemur víst til með að einkenna íslensk átakastjórnmál enn um hríð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)