Ný stjórnarskrá - nýtt Ísland

Í dag greiðir þjóðin atkvæði í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem ráðið afhenti forseta Alþingis fyrir ári. Í kjölfar Þjóðfundar 2010 og áratuga umræðu um endurbætur á lýðveldisstjórnarskránni og kröfu um aukið jafnræði mun Alþingi móta stjórnarskrá sem borin verður undir þjóðina. Íhaldsöflin í landinu munu ekki geta stöðvað þá framþróun.

Frá stofnun lýðveldis hefur átt að endurskoða stjórnarskrána frá 1944, sem að meginstofni er þýðing á DANMARKS RIGES GRUNDLOV af 5. Juni 1915 med ændringer af 10. September 1920 – ekki aðeins lappa upp á hana, eins og gert hefur verið sjö sinnum – heldur semja algerlega nýja stjórnarskrá.

Við hrunið 2008, sem á sér enga hliðstæðu í 65 ára sögu lýðveldisins, töldu margir að nú væri tími kominn til að endurskoða stjórnarskrána, ekki vegna þess að “danska” stjórnskráin væri orsök hrunsins, heldur til að marka nýja stefnu. Í ljós hafði komið glæpsamleg spilling í efnahagslífi og stjórnmálum landsins, spilling sem á sér ekki hliðstæðu með nágrannaþjóðum okkar á Norðurlöndum.

Sundurlyndi stjórnmálaflokka, sem eru sjálfum sér sundurþykkir, og fyrirlitning stjórnmálamanna - svo ekki sé sagt hatur þeirra hver á öðrum - hefur kynt ófriðarbál og tafið endurbætur á stjórnkerfi landsins.

Enn ríkir sundrung í þjóðfélaginu, tortryggni, reiði, vonleysi og vonbrigði. Frumstæð umræða á opinberum vettvangi um ágreiningsmál – og þá ekki síst frumstæð ómálefnaleg umræða á Alþingi – gerir þinginu ókleift að ráða fram úr aðkallandi verkefnum.

Með nýrri stjórnarskrá, sem verður sáttmáli meirihluta þjóðarinnar, má vænta þess að unnt sé að auka ábyrgð stjórnvalda, tryggja raunverulega þrískiptingu valds og endurreisa traust almennings á Alþingi, ríkisstjórn og dómstólum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Mæl þú manna heilastur, Tryggvi.

Ómar Ragnarsson, 20.10.2012 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband